Ástan and Liljan - hamingjan uppmáluð!
Bloggiblogg..Lilja og Ásta:D
Það er ógeðslega ömurlegt að vera með blogg sem enginn skoðar svo að þetta er fáránlegt!!kv. Ástan.....
BluuueefellLilja og Ásta:D

Jeij, hvernig væri það nú að fara upp í Bláfjöll næsta sunnudag!?:D ég og Helena og e.t.v. fleiri munu vera í 12:40 rútunni;) og byrja strax að brettast!!:D
Gleðilegt nýtt ár!Lilja og Ásta:D
Ekki mikið sem hefur gerst hjá mér undanfarna daga, fór í lítið atvinnuviðtal í gær og gekk það bara mjög vel..Fór í keilu með krökkunum og fórum í danstækið þarna.. voða .. spes..verð ég að segja:P
Fékk stundatöfluna mína í dag og er ekkert svaka sátt.. hún er í vinnslu hvað varðar breytingar og viðbót í töfluna og svona..:P en eitt get ég sagt... þetta verður ekki auðveld önn.. stundataflan mín eins og er lítur þannig út að ég er 4 daga til hálf 5.. gæti ælt. og hún inniheldur 15 einingar.. sem ég ætla ekki að vera með:P valdi 21 minnir mig
en nóg með það..
Byrja síðan í skólanum næsta mánudag því að á morgun eru nýnemar að fá stundatöfluna sína.. sem betur fer því að ég er að standa í þessum breytingum.
For svo að kaupa bækur.. get bara keypt fyrir tvö fög.. eðlisfræði og efnafræði þar sem ég veit ekkert í hvað ég fer.. og hvað ég á að kaupa það sem ég fer í..
Annars er ég bara voða hress og er að pæla í að fara að taka til en er varla að nenna því ... svooo ég veit ekki, bless í bili.
Kv. Ástan
Lilja og Ásta:D
Gleðileg jól!!!:Dkv. Ásta Karen og Lilja Björk (þó svo að hún viti ekkert af þessu;))
INCUBUS!!!Lilja og Ásta:D
Er eitthver að fara á INCUBUS 3. Mars?? Miðasala hefst 12. des!!J'adore;*
Me gusta muchisímo!!!!!
I looooove
Jeg elsker:P
Takk fyrir,
Ásta Karen
og já eitt í viðbót.. er fólk að fara á eitthvað ball? versló ball? kvennó ball? á ég að fara á eitthvað ball:/?
Próf & jól!Lilja og Ásta:D
Það styttist í jólin og allir eru önnum kafnir í próflestur, og sömuleiðis ég en er bara að taka mér 10 min pásu til að skrifa smá blogg, kominn tími til! er að fara í líffræðipróf á morgun og held ég að mér eigi eftir að ganga vel! var í prófi síðasta mánudag, í stæ503 prófi og gekk það bara nokkuð ágætlega.Svo er ísl403 próf á föstudaginn og í næstu viku á miðvikudaginn er jar103 próf og þá er allt búið, 13. des komin í jólafrí kl 10:00;) þá vitiði það
Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra og ætla að snúa mér aftur að líffræðinni...
Er fílingur fyrir litlu jólum eftir prófin? býst samt ekki við mörgum kommentum þar sem fólk sér ekki sólina fyrir stöfum í bókum!
So long...
kv. Ástan!!
Helgin:)Lilja og Ásta:D
en já helgin er búin og ég verð nú að segja að ég held ég sé nú bara þreyttari núna en fyrir helgi
sunnudagurinn byrjaði nú líka alveg frábærlega....ég vaknaði um hálf níu(átti að mæta í vinnunna kl.9) og leit út um gluggann og sá allan snjóinn og það eina sem ég pældi í var að ég þyrfti að skafa bílinn og þá að fara aðeins fyrr út....en neinei ég kem út og labba undirgöngin út að bílastæði og þá sé ég bara heljarinnar skalfl fyrir þeim!!! og þá fyrst fór mér að hætta að lítast á blikuna
næsta helgi verður vonandi skemmtilegri
ég hef ekkert meira að segja í bili....
Liljan
p.s. er ég ein um að vera byrjuð að hlakka til jólanna???

hehe...fyrir þá sem ekki skilja þýsku:
Jólasveinninn: Skrambinn! ég held ég komist ekki hérna!
Hreindýrið: og ég held þú sért of feitur!
ég er kannski enginn snillingur í þýsku en þetta er svona nokkurn veginn þýðingin
Helgarfrí búiðLilja og Ásta:D
og prófin nálgast:) Jólin að koma og allt voða gaman..Enginn fílingur fyrir að vera með þessa síðu?
toooomorrowwww;)Lilja og Ásta:D
Jæjaaa..Afmæli hjá litlu frænku minni á laugardaginn kl 18;) smá fjölskylduhittingur, voða gamanVikan aaalveg að verða búin.. 8 tímar eftir og ég er komin í mitt langþráða helgarfrí
Er það flipp annað kvöld?? nei ég bara spyr, þar sem ég er búin að vera að einangra mig heima í lærdómi alla þessa viku:)
kv. Ásta pásta!
aaaawesomee!Lilja og Ásta:D
Ég fór á spunakeppnina í gær með Lilju og Helenu, vissi reyndar ekki að það yrðu margir skólar þar til hann kallaði alla skólana uppá sviðið, MK, MH, MS, ME og alles:P
Jæja ég skemmti mér ágætlega, MH vann, rosalega skemmtilegt lið hjá þeim, Bryndís í Kvennó stóð sig frábærlega, en komust þó ekki áfram í úrslit.. en aftur á móti komst MK í úrslit..
En jæja, þetta var farið að vera býsna langdregið samt.., en ánægð með kvöldið!
Svo er brjálað að gera hjá mér í næstu viku, er að fara í þrjú próf..spænsku, jarðfræði og líffræði..
Flytja a.m.k. 3 fyrirlestra.. spænsku, jarðfræði og íslensku
Gera eitthver skiiilaverkefni..ohh.. en ég lifi þetta af..
er svo að fara í tjékkup á tennurnar mínar hjá tannsa, hefur eitthvern tímann verið vandamál með tennurnar mínar? niiii:P alltaf bara.. perfect teeth!:D
Ég held ég láti mig hverfa í bili........duddumm...
Bæj!
kv. Ástan